top of page

Hvað er Landa?

Landa var stofnað með það að markmiði að hjálpa hótelum og gististöðum að ná betri árangri í stafrænu umhverfi – án flókins orðaforða, óljósra mælikvarða eða staðlaðra lausna sem henta öllum.

Reynslan sýnir að mörg fyrirtæki eru með frábæra vöru og þjónustu, en ná ekki að miðla henni rétt áfram.

 

Þar kemur Landa inn: með skýra stefnu, vandað efni og markvissa notkun samfélagsmiðla og stafrænnar miðlunar til að byggja traust, auka sýnileika og styðja við beinar bókanir.

Untitled (3840 x 2160 px).png

Nálgun Landa

Landa vinnur út frá því að hvert fyrirtæki sé einstakt. Áhersla er lögð á:

  • Skýra vörumerkjaímynd

  • Faglegt og sannfærandi myndefni

  • Markvissa textagerð sem talar til rétts markhóps

  • Raunhæf markmið og mælanlegan árangur

Markmiðið er ekki bara að „vera sýnileg“, heldur að skapa innihald sem styrkir ímynd fyrirtækisins og skilar raunverulegum viðskiptalegum ávinningi.​​​​​​​​​​

Samstarf byggt á trausti

Landa leggur áherslu á langtímasamstarf, gagnsæi og skýr samskipti. Viðskiptavinir fá ekki bara þjónustuaðila, heldur samstarfsaðila sem skilur bæði markaðssetningu hótela og gististaða og raunverulegar áskoranir ferðaþjónustunnar.​​​​​​​​​​

bottom of page